Tengill fyrir dk er dk-tengingin sem þig hefur vantað fyrir WooCommerce-verslunina þína. Reikningar eru keyrðir út og bókaðir sjálfkrafa við kaup, vörur eru samstilltar á milli kerfanna og hægt er að veita innskráðum viðskiptavinum sérkjör með því að nýta verðhópa úr dk.
Hvort sem þú ert að leita að lausn til að skrifa út reikninga og bóka greiðslur, birta vörur og vöruafbrigði eða bjóða viðskiptavinum uppá fasta afslætti og sérverð, þá er Tengill fyrir dk lausn sem hentar þeim sem eiga og reka WooCommerce-vefverslun og reiða sig á dk í sínum rekstri.
Áskriftarleiðir
Prufuáskrift
Frítt!
Bókaðu kynningarfund í dag og þú getur fengið staka eins mánaðar áskrift að andvirði 15.000 kr. í kynningarskyni án frekari skuldbindinga.
Ársáskrift
110.000 kr.
Hvort sem þú ert að setja upp þína eigin vefverslun eða að hanna og setja upp fyrir aðra, þá er þetta sá áskriftarpakki sem hentar flestum þeim sem eru með vefverslun í WooCommerce og bókhald í dk.
Þessi leið jafngildir 9.167 kr. á mánuði og þarf aðeins að endurnýja á 12 mánaða fresti.
Tveggja ára áskrift
180.000 kr.
Til langs tíma, þá er tveggja ára áskrift ódýrasta leiðin. Þessi áskriftarleið jafngildir 7.500 kr á mánuði og þarf aðeins að endurnýja á 24 mánaða fresti.
Tengill fyrir DK er WordPress-viðbót sem tengir WooCommerce við dk-bókhaldskerfið. Boðið er upp á þrjár áskriftarleiðir; í einn mánuð fyrir 15.000 kr., eitt ár fyrir 110.000 kr. eða 180.000 kr. fyrir tvö ár í senn. Allar áskriftir eru greiddar fyrirfram, endurnýjast ekki sjálfkrafa og fela í sér sömu notkunarmöguleika, uppfærslur og þjónustustig á áskriftartímabilinu nema annað sé tekið fram. Öll verð eru í ISK og án VSK. Sölu- og þjónustuaðili er Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir, með búsetu í Berlín í Þýskalandi og varnarþing í Charlottenburg.

Tengill sparar okkur mjög mikla vinnu í hverri viku, hefur þegar borgað sig upp margfalt og þjónustan sem við höfum fengið er framúrskarandi
Íris Angela Jóhannesdóttir, innkaupa- og markaðsstjóri Víkurverks
Þetta fylgir með í pakkanum
Grunnstoðin í Tengli fyrir dk er skalanleg samtenging og samstilling á milli WooCommerce-vefverslanakerfisins og dk-bókhaldskerfisins sem hægt er að setja upp á eigin spýtur.
Hvort sem þú ert með 5, 50 eða 5.000 vörunúmer sem þarf að samstilla milli dk og WooCommerce eða hversu mikla sölu þú ert með, þá er Tengill fyrir dk lausnin fyrir þig.
Tengill fyrir dk getur lesið út vöruheiti, vörulýsingar, verð og VSK-þrep fyrir hverja vöru sem er skráð í dk eða merkt sem „í vefverslun“ og samstillt við WooCommerce. Hægt er að eyða vörum sjálfkrafa úr vefverslun þegar þær teknar úr birtingu í dk, nýskrá vörur og uppfæra vöruflokka.
Tengill fyrir dk getur einnig keyrt út reikninga fyrir greiðslur og pantanir sjálfkrafa við afgreiðslu eða með einum músarsmelli í gegn um WooCommerce-viðmótið. Kreditreikninga er hægt að útbúa við vöruskil eða ef hætt er við kaup í gegn um WooCommerce beint í gegn um WooCommerce.
Stuðningur við þau tól sem þú notar
Hvort sem þú notar Classic, Gutenberg, WPBakery, Flatsome, Avada eða Elementor, þá virkar Tengill fyrir dk beint úr kassanum og aðlögun fyrir þann builder sem þú notar er í boði án aukagjalds.
Sérhannað viðmót fyrir vöruafbrigði
Tengill fyrir dk er með fullan stuðning við vöruafbrigði, bæði þau sem eru skráð beint í dk og þau sem eru skráð handvirkt inn í WooCommerce og notar til þess sérhannað viðmót sem brúar bilið á milli.
Kennitölur og viðskiptamannanúmer
Tengill fyrir dk bætir reit fyrir kennitölur og viðskiptamannanúmer inn í afgreiðsluformið og pantanaviðmótið í WooCommerce og gerir þér kleift að skrá kennitölur á innskráða notendur, breyta kennitölum fyrir pantanir o.s.frv.
Afslættir og sérkjör
Tengill fyrir dk les upplýsingar um vöruafslætti og útsöluverð og einig verðhópa og fasta afslætti innskráðra viðskiptavina úr dk út frá kennitölu, birtir þeirra verð í WooCommerce og skráir afslætti á reikninga.
Verð með eða án vasks
Tengill fyrir dk getur lesið, skráð og birt verð út frá upplýsingum í dk, bæði með og án virðisaukaskatts og útbýr reikninga án VSK fyrir erlenda viðskiptavini.
Magnakassar, bretti og stakar einingar
Tengill fyrir dk getur lesið út sjálfgefið sölumagn úr dk og notað sem lágmarksmagn og margfeldi, sem auðveldar heildsölu þar sem magnpakkningar eru seldar en ekki vörur í stykkjatali.
Tengiliðir viðskiptavina
Skráðir notendur í WooCommerce geta verið tengdir við tengiliði skuldunauta í dk, sem þýðir að hægt er að skrá notanda fyrir hverja deild eða starfsstöð í B2B-verslun.
Vinnur vel með öðrum
WooCommerce-uppsetningar eru jafn fjölbreyttar og þær eru margar og Tengill fyrir dk gerir sitt besta til að vinna vel með öðrum viðbótum sem uppsettar eru með WooCommerce og sem flestum hýsingum.
Hraði og stöðugleiki á álagstímum
Tengill fyrir dk gerir ekki kröfu um sítengingu við dkPlus eða aðrar vefþjónustur, tengist eingöngu eftir þörfum og heldur þannig hægagangi, niðritíma og gagnatapi í algeru lágmarki.
Fyrsta flokks notendahandbók og skjölun
Það er allra hagur að þær leiðbeiningar sem eru til staðar séu sem bestar og notendahandbókinni hér á tengillpro.is er haldið við auk þess sem grunnkóði er vel skjalaður.
Þekking, þjónusta og aðstoð beint frá höfundi
Hönnun, þjónusta og aðstoð er öll á einni hendi og þeirri vinnu er ekki úthýst eða vísað í gervigreind. Þú færð því alltaf tækniaðstoð frá hæfustu manneskju sem völ er á, milliliðalaust.
Sanngjarnt verðlag fyrir alla
Hver og einn getur sett Tengil fyrir dk upp og áskrift er seld eftir föstum verðum. Allir möguleikar eru til staðar án aukapakka og hægt er að nota Tengil fyrir dk í þróunar- og prófunarumhverfi að vild.
Yfir tuttugu ára reynsla og þekking
Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir er aðalhöfundur Tengils fyrir dk, þjónustar hugbúnaðinn og heldur honum við. Hún hefur unnið við hugbúnaðarþróun, textaskrif, vefhönnun, kerfisrekstur og úttektir í yfir 20 ár og hefur komið við hjá vefhýsingarfyrirtækjum, alþjóðlegum stofnunum, hönnunarstofum og sprotafyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum um allan heim.
Alda hefur m.a. komið að innri virkni WordPress og hefur unnið hjá fyrirtækinu á bak við WordPress.com og að öðrum frjálsum hugbúnaði sem áhugamál og að atvinnu.
Hún er mun fróðari um þá tækni sem liggur að baki WordPress og WooCommerce en svo til allir aðrir á íslenska markaðnum og hefur ennfremur öðlast djúpa tæknilega þekkingu á dk-bókhaldskerfinu við þróun á Tengli fyrir dk.
Hún hefur þar að auki praktísku reynsluna af gólfinu sem getur verið mikilvæg í rekstri vefverslana og getur hugsað upp lausnir af áhuga og eljusemi.

