Kynningar
Það gefur auga leið að það getur verið erfitt að velja viðskiptahugbúnað eða gera sér grein fyrir kostum og göllum án þess að prófa eða sjá fyrst og Tengill fyrir dk er engin undantekning.
Sama hvað umfangið er á þínum rekstri ættirðu ekki að hika við að óska eftir fundi þar sem þú getur séð hvernig Tengill fyrir dk virkar fyrir sig, spurt spurninga og fengið þau svör sem þú þarft til að taka ákvarðanir um næstu skref.
Slík kynnning er þér að kostnaðarlausu og prufuáskrift getur fylgt með strax eftir fyrsta fund.
Eins mánaðar prufuáskrift er alltaf aðgengileg þeim sem vilja prófa Tengil fyrir dk á sínum eigin forsendum og án áhættu.
Almenn ráðgjöf og aðstoð
Með Tengli fyrir dk fylgir þjónusta og aðstoð sem veitt er eftir bestu getu, en einnig er í boði auka ráðgjöf, þjónusta og smíði sérlausna í boði fyrir þau fyrirtæki sem gera kröfur um meira en það sem er í boði beint upp úr kassanum.
Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir er WordPress-sérfræðingur í heimsklassa og hefur m.a. komið að smíði nýja ritilsins í WordPress, unnið hjá íslenskum vefstofum og í ráðgjöf fyrir viðskiptavini hjá vefhýsingarfyrirtækum, þýskum sprotafyrirtækum, sem og við smíði á WordPress.com og Jetpack; sem hvort um sig eru með milljónir virkra notenda.
Hvort sem þú ert að reka litla verslun eða stóran fjölmiðil, þá er ekkert verkefni of lítið eða of stórt hvort sem það tengist WordPress, WooCommerce eða öðrum kerfum.
Athugið að innheimt er fyrir ráðgjöf og aðstoð sem ekki fylgir Tengli fyrir dk eftir verðskrá.
Verðskrá útseldrar þjónustu
| Almennt tímagjald | 120 EUR/klst. |
| Neyðar-, stórhátíðar- helgar- og næturvinna | 228 EUR/klst. |
Ofangreint tímagjald gildir frá og með 1. júlí 2026 en eldri verðskrá gildir fyrir viðskiptavini sem hafa verið í viðskiptum áður fram að áramótum 2026/2027. Ath. að VSK þarf að gera upp á Íslandi og reiknast ekki ofan á verð.
