Hvað er Tengill fyrir dk?
Tengill fyrir dk er WordPress-viðbót sem tengir WooCommerce-vefverslanir við dk-bókhaldskerfið. Hægt er að samstilla vörur og birgðastöðu milli dk og WooCommerce, gefa út reikninga og samstilla upplýsingar um afsláttarkjör og tengiliði viðskiptavina milli kerfanna. Tengill notar ekki nein utanaðkomandi kerfi til að hafa samband við dk og keyrir að fullu á þinni WordPress-uppsetningu.
Hvað kostar Tengill fyrir dk?
Hér á tengillpro.is eru seldar 3 áskriftarleiðir. Sú leið sem hentar flestum er ársáskrift sem kostar 110.000 kr. en einnig er í boði tveggja ára áskrift á 180.000 kr. og mánaðaráskrift á 15.000 kr. Öll verð eru fyrir VSK. Þar sem uppsetning og afgreiðsla getur farið fram í sjálfsafgreiðslu og Tengill fyrir dk keyrir að fullu á þinni WordPress-uppsetningu, þá eru engin aukagjöld fyrir uppsetningu eða sérstakt startgjald nema óskað sé eftir útseldri vinnu sérstaklega.
Endurnýjast áskriftin sjálfkrafa?
Áskriftir eru ekki látnar endurnýjast sjálfkrafa. Þar sem greitt er greitt fyrir eitt eða tvö ár fyrirfram var en ekki mánaðarlega ákveðið með heiðarleika að leiðarljósi að fara þá leið að láta áskriftarleiðir ekki endurnýjast með því að fá kortaheimild eða senda greiðslukröfu.
Hver býr til, selur og þjónustar Tengil fyrir dk?
Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir er aðalhöfundur, þjónustu- og söluaðili Tengils fyrir dk. Alda hefur áður unnið fyrir íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984, Automattic (WordPress.com, Jetpack o.fl), Sameinuðu þjóðirnar og ýmis sprotafyrirtæki, félög og stofur í Þýskalandi og á Íslandi.
Alda Vigdís var hluti af íslenska þýðingarhópi WordPress áður en hann lagðist í dvala fyrir útgáfu 5.0 og hefur tekið virkan þátt í WordPress-samfélaginu um árabil, bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Hún hefur sótt og haldið fyrirlestra á WordCamp-ráðstefnum og lagt til vinnu í WordPress-kjarnann og hvatt til nútímalegra vinnubragða í kring um WordPress svo eitthvað sé nefnt.
Alda Vigdís heldur auk Tengils fyrir dk úti þróunartólum fyrir WordPress á borð við wp-tests-strapon sem notað er til að keyra einingapróf fyrir WordPress-viðbætur og DockPress, sem bæði er hægt að nota til að halda utan um þróunarumhverfi í Docker og skalanlega WordPress-hýsingu í Kubernetes.
Hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar til að Tengill fyrir dk virki?
Tengill fyrir dk gerir kröfu um að dkPlus sé uppsett og virkt. Ef þú ert ekki með dkPlus eða ert ekki viss um það er best að hafa samband við dk hugbúnað og fá þar aðstoð og ráðgjöf.
Virkja þarf hverja áskrift með því að kaupa leyfiskóða hér á tengillpro.is. Gert er ráð fyrir því að nýjasta útgáfa af WordPress og WooCommerce sé í notkun, sem og nýjasta útgáfa PHP sem studd er af WordPress og WooCommerce hverju sinni til að tryggja fulla virkni.
Í dkPlus þarf svo að skrá notanda og sölumann fyrir vefverslun og útbúa API-lykil fyrir dkPlus, sem færður er inn á stillingarsíðu.
Best er að búa til sérstakan notanda og sölumann í dkPlus fyrir þann API-lykil sem þú notar. Best er að sá notandi hafi ekki aðgang að neinu öðru en því sem þörf er á; þ.e.a.s. eingöngu því fyrirtæki sem vefverslunin tilheyrir, sölukerfi, vörum, sölumönnum og skuldunautum en ekki öðrum kerfishlutum á borð við launakerfið, fjárhag eða lánadrottnum.
Virkar Tengill fyrir dk ef ég hýsi dk-uppsetninguna mína innanhúss?
Tengill fyrir dk virkar með öllum þeim dk-uppsetningum sem eru með opið fyrir dkPlus. Fyrir fyrirtæki sem hýsa sjálf sína dk-uppsetningu innanhúss er hægt að setja upp og tengjast dkPlus samkvæmt upplýsingum í notendahandbók dkPlus. Best er að leita til dk hugbúnaðar hvað varðar aðstoð við uppsetningu á slíku.
Virkar Tengill fyrir dk fyrir B2B-viðskipti og heildsölu?
Já, Tengill fyrir dk getur birt verð bæði með og án VSK og getur sýnt innskráðum viðskiptavinum verð eftir verðhópum og með afsláttarkjörum. Möguleikar á borð við magnafslætti og sjálgefið sölumagn sem lágmarkspöntun hafa einnig verið innleiddir.
Hvaða þjónusta er innifalin ef greitt er fyrir Tengil fyrir dk?
Með kaupum á notkunarleyfi fæst aðgangur að sjálfvirkum uppfærslum, aðstoð við uppsetningu í gegn um Zoom eða Google Meet, almenn aðstoð fyrir notendur í tölvupósti auk alls þess sem Tengill fyrir dk hefur uppá að bjóða. Aðstoð nær yfir hugbúnaðinn sjálfan; þ.m.t. aðstoð við uppsetningu, sem og almenna hjálp og ráðgjöf.
Get ég notað Tengil fyrir dk þó ég ætli mér ekki að nota alla þá möguleika sem fylgja?
Hægt er að slökkva og kveikja á flestu því sem Tengill fyrir dk hefur uppá að bjóða. T.d. er hægt að slökkva á samstillingu, uppfærslu og sjálfvirkri nýskráningu á vörum ef ætlunin er að færa þær handvirkt inn í WooCommerce. Það sama á við um verð, vöruheiti, lýsingar og fjölda á lager og hægt er að gera þetta bæði yfir alla vefverslunina í heild, sem og fyrir hverja og eina vöru.
Einnig er hægt að slökkva á sjálfvirkri reikningagerð þar til farið hefur verið yfir pantanir og ýtt á takka sem bætt hefur verið inn í pöntunarviðmót WooCommerce.
Uppfærist birgðastaða í dk sjálfkrafa við sölu í WooCommerce og öfugt?
Ef vara er skráð sem lagervara í dk lækkar fjöldi á lager niður um 1 fyrir hverja einingu sem skráð er á útgefinn reikning. Birgðastaðan í dk uppfærist því um leið og reikningur er gefinn út, rétt eins og ef reikningur er stofnaður beint í dk.
Á um klukkutíma fresti eru gögn lesin yfir í WooCommerce úr dk. Við það eru upplýsingar um vörur á borð við fjölda á lager uppfærðar til samræmis skráningu í dk.
Ekki er hægt að skrá fjölda á lager handvirkt í dk í gegn um það viðmót sem Tengill fyrir dk notar. Til þess þarf að framkvæma vörutalningu í dk.
Hversu fljótt berast upplýsingar úr dk og yfir í WooCommerce?
Eins og er, þá sækir Tengill fyrir dk gögn um vörur og viðskiptavini frá dkPlus á ca. 1 klst. fresti og samstilling á sér því ekki stað í rauntíma. Upplýsingar samstillast þar að auki á milli dkPlus og dk á um 10-15 mínútna fresti, sem þýðir að sá tími bætist ofan á aðra mögulega bið.
Til að komast framhjá þessu er hægt að fara í stillingaformið og vista stillingar og þá eru sóttar nýjar upplýsingar frá dkPlus.
Tengill fyrir dk styður ekki vefkróka eins og sakir standa þar sem ekki hefur tekist að fá þá til að virka.
Er Tengill fyrir dk sami hugbúnaður og sá sem 1984 gefur út?
Tengill fyrir dk hefur rætur að rekja til sama verkefnis en er strangt til tekið ekki sami hugbúnaður. Nafn fyrirtækisins, vörumerki og önnur hugverk sem ekki falla undir GPLv3-leyfið hafa ennfremur verið afmáð og eru ekki notuð í markaðs- og söluskyni skv. beiðni þar að lútandi.
Þær framfarir sem hafa orðið síðan þá eru það miklar að ekki er lengur hægt að segja að um sé að ræða sama hugbúnað að ræða. Sem dæmi um þær breytingar sem gerðar hafa verið og þá galla sem hafa verið lagaðir má nefna stórbætta skölun sem þýðir að hægt er að nota hugbúnaðinn til að keyra inn mörg þúsund vörunúmer, leiðrétta útreikninga á línuverði, samtalstölum og virðisaukaskati, bættan stuðning við erlenda viðskiptavini, bætt notendaviðmót sem og nýja möguleika á borð við vöruafslætti, samstillingu á vöruflokkum, tengiliði viðskiptavina og fasta afslætti fyrir skráða viðskiptavini.
