Skilmálar og lagalegir fyrirvarar

Eftirfarandi eru skilmálar fyrir notkun á og þjónustu vegna Tenglis fyrir dk, sem er WordPress-viðbót sem tengir WooCommerce-vefverslanir við DK-bókhaldskerfið.

Þessir skilmálar og fyrirvarar geta breyst án fyrirvara.

Höfundur Tengils fyrir dk og þjónustuveitandi er Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir, með aðsetur í Berlín í Þýskalandi og varnarþing í Charlottenburg. Sala og þjónusta fer fram undir eigin nafni höfundar. Hér fyrir neðan eru persónufornöfnin „ég“ og „við“ notuð um höfund viðbótarinnar.

Höfundi er heimilt að framselja eða færa þær skuldbindingar og ábyrgð sem fylgja sölu og þjónustu sem tengist Tengli fyrir dk til annars lögaðila.

Ennfremur eru hér fyrir neðan hugtökin „notandi“, „viðskiptavinur“ persónufornafnið „þú“ notað yfir hvern þann sem notar, setur upp hugbúnaðinn eða kaupir ársáskrift eða þjónustu vegna Tengils fyrir dk.

Takmörkuð ábyrgð

Þessi WordPress-viðbót er þróuð, henni haldið við og stutt er við hana eftir bestu getu en engin ábyrgð eða loforð eru gefin um virkni eða villuleysi skv. GPLv3 leyfinu. Þar sem viðbótin tengist, notar og hefur áhrif á bókhaldsgögn í dk, þá er eindregið mælt með því að öll gögn úr dk séu til afrituð og að fylgst sé með því að það séu engar óvenjulegar hreyfingar. Ennfremur er mælt með því að viðbótin sé prófuð í lokuðu prufuumhverfi áður en hún fer í fulla notkun.

Hver og einn ábyrgð á rekstri sinnar vefverslunar og óvæntir hlutir og óhöpp geta alltaf komið upp. Höfundur viðbótarinnar ber ekki ábyrgð á skaða eða tjóni sem verður á af völdum viðbótarinnar eða notkunar á henni.

Persónuvernd

Hugbúnaðurinn Tengill fyrir dk hefur samskipti beint við API-viðmótið í dkPlus. Við gætum mögulega notað þjónustu þriðja aðila til að veita notendaaðstoð og við almennan rekstur en ekki til að lesa persónugreinanleg gögn með öðrum hætti nema með fengnu leyfi.

Persónuverndarstefna dk hugbúnaðar gildir um notkun á þeirra API-viðmóti og annari þjónustu á vegum DK.

Tengill fyrir dk mun aðeins senda persónugreinanleg gögn um þína viðskiptavini og aðrar upplýsingar sem falla undir íslenska og evrópska löggjöf beint á milli WordPress- og WooCommerce-uppsetningarinnar þinnar og dk í gegn um dkPlus API-viðmótið.

Utanaðkomandi þjónusta eða proxy-þjónusta eru ekki notaðar af höfundi viðbótarinnar til að skrá, fylgjast með eða geyma upplýsingar aðrar en þær sem snúa að þínum leyfiskóða, þínum kaupum á notkunarleyfum og þínum þjónustubeiðnum.

Þegar viðbótin er notuð, þá gæti WooCommerce-vefurinn þinn gefið til kynna falið fingrafar eða annað sem gefur til kynna hvaða notkunarleyfi þú hefur fyrir Tengli fyrir dk, til að aðstoða við notendaaðstoð og getur eingöngu verið rakið til baka af höfundi viðbótarinnar, starfsfólki eða verktökum með leyfi til þess. Þetta getur t.d. verið HTTP-haus eða HTML-tag.

Vefurinn tengillpro.is er hýstur hjá Siteground og notar þau tæki, tól og þjónustu sem Siteground býður uppá ásamt þjónustum á borð við Plausible Analytics. Greiðslumiðlun fer fram í gegn um Stripe.

Kökur og persónugreinanlegar upplýsingar aðrar en IP-tölur eru ekki vistaðar eða sendar til þriðja aðila nema þegar um er að ræða greiðslumiðlun vegna kaupa á vörum og þjónustu á tengillpro.is, sem fer fram í gegn um Stripe.

Hugbúnaður eða þjónusta frá þriðja aðila á borð við Zendesk eða Dixa gæti verið notuð til að veita notendaaðstoð sem tengist viðbótinni og Brevo til að halda utan um póstlista og sendingu á tölvupósti. Nokotime er notað til að halda utan um tímaskráningar og Google Workspace er notað fyrir almenna skrifstofuvinnu, þ.m.t. samskipti í tölvupósti.

Þjónustuskilmálar

Þjónusta er eingöngu veitt fyrir óbreytta útgáfu af Tengli fyrir dk eins og hún liggur fyrir og er gefin út af höfundi.

Innifalin í áskrift er þjónusta og aðstoð við uppsetningu og annað tilfallandi sem tengist uppsetningu á hugbúnaðinum í eitt skipti, á einum vef en fyrir vinnu umfram það er innheimt skv. tímagjaldi hverju sinni.

Aðstoð og þjónusta er veitt eftir bestu getu höfundar viðbótarinnar hverju sinni. Þér gæti verið vísað á notendaaðstoð hjá dk eða þinn eigin bókara vegna fyrirspurna sem snúa að dk-kerfinu sjálfu.

Þjónusta er ennfremur ekki veitt þegar „forkaðar eða núllaðar útgáfur af WordPress-viðbótum eða útlistsþemum eru uppsettar, þó svo að slíkt sé auðsótt, fullkomlega löglegt og þeim skilyrðum sem sett eru í GPLv3-leyfinu sé fylgt.

Stuðningur við borgaðar útgáfur af viðbótinni eru eingöngu í boði ef greitt hefur verið fyrir áskrift og hún í gildi.

Ávalt er miðað við að Tengill fyrir dk keyri í nýjustu útgáfu PHP, WordPress og WooCommerce hverju sinni.

Aðlögun og útseld vinna getur leitt af sér afurð sem felld er inn í hugbúnaðinn sjálfan.

Höfundur viðbótarinnar áskilur sér rétt til að loka fyrir greidda, innifalda eða gjaldfrjálsa þjónustu af hvaða ástæðu sem er. Þar á meðal má nefna áreiti, ógnandi hegðun og málnotkun, hatursoðræðu, efni og viðskiptahættir sem mögulega eru ólöglegir eða ógnandi, sem og misnotkun á góðvild eða þeirri þjónustu sem er í boði.

Öryggisstefna

Höfundur viðbótarinnar vinnur að því að halda viðbótinni öruggri í notkun mun bregðast við öllum öryggistengdum athugasemdum sem berast eftir bestu getu.

Vinsamlegast ekki gefa til kynna eða lýsa öryggisbrotum eða öryggistengdum málum sem varða viðbótina fyrir opnum tjöldum án þess að gera tilraun til að upplýsa um málið á ábyrgan hátt (e. responsible disclosure).

Ef þú tekur eftir öryggisvandamálum með þessa viðbót, þá skaltu hafa samband við höfund hennar beint í tölvupósti eða með því að nota þar til gert eyðublað á tengillpro.is.

Impressum

Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir
Berlín, Þýskalandi

Þýskt skattanúmer: 1853502372
W-IdNr. DE405902071-00001

Rekstrarform: Einstaklingur með eigin rekstur (Freiberufler Kleinunternehmer)

Varnarþing: Charlottenburg